Smjattpattar

Monday, December 18, 2006

Jólakveðja


Jæja stelpur mínar! Er ekki komin jólastemning í hug og hjarta? Á mínum bæ er þetta allt að bresta á..smákökurnar komnar í boxin og eitthvað af skrauti komið upp!

Þar sem síðunni hinni hefur verið læst og ekki greitt þennan 3000 kall fyrir, ákváðum við Beta og GV bara að hafa þessa ...allavega finnst mér við verða að geta fylgst með um jólin...

Þegar þið fáið andann yfir ykkur og viljið hér rita þá farið á www.blogger.com og farið í sign in. Sendi username og password í emaili!

Hvernig er svo með partýið í Janúar ???

Jólakveðja
Jólaló

Thursday, November 09, 2006

Smjattpattablogg!!




Guðrún Vala -Gevalía- kom með þá snilldarhugmynd að Smjattpattar skyldu starta bloggsíðu! Auðvitað fór ég á flug en ekki hvað..og ákvað að prófa bara hér á blogger og sjá hvernig það kemur út.
Hérna er frítt að blogga, getum sett inn myndir á bloggið úr okkar tölvum, það þarf sem sé ekki að setja myndirnar fyrst á netið og svo framvegis til að birta þær hér, heldur er hægt að setja þær bara beint inn á bloggið hverju sinni. En svo getum við auðvitað fengið fría myndasíðu á netinu. Mér finnst persónulega bara nóg að ef við erum allar með aðgang hér inn, að þá getum við bara hver og ein sett inn nokkrar góðar myndir eftir hittingana okkar hverju sinni. Við erum kannski ekki það öflugar að vera með spes myndasíðu? Eða hvað finnst ykkur???

Sendi ykkur slóðina að þessu og við sjáum til hvað setur. Lookinu má breyta síðar!

jólastússkveðjur
Sabbaló